Manneskja ársins hjá Time - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Manneskja ársins
(e.
Person of the Year
; kynjað sem [karl]maður ársins eða kona ársins til ársins 1999) er árlegt eintak af bandaríska tímaritinu
Time
sem fjallar um einstakling, hóp, hugmynd eða hlut sem hefur „til hins betra eða verra […] gert mest til þess að hafa áhrif á atburði ársins“.
Bakgrunnur
breyta
breyta frumkóða
Sú hefð að velja mann ársins hófst árið 1927 þegar ritstjórar
Time
veltu fyrir sér hverjir hefðu verið mest áberandi í fréttum ársins. Með hugmyndinni átti líka að bæta upp fyrir það að flugmaðurinn
Charles Lindbergh
hafði ekki birst á forsíðu blaðsins eftir sögulegt einstaklingsflug sitt yfir Atlantshafið sama ár. Í lok ársins voru því tvær flugur slegnar í einu höggi með því að hafa Lindbergh á forsíðunni.
Listi yfir manneskjur ársins
breyta
breyta frumkóða
Ár
Mynd
Val
Ævi
Athugasemdir
Í öðru sæti
1927
Charles Lindbergh
1902–1974
Fyrsta einstaklingsflugið yfir
Atlantshafið
1928
Walter Chrysler
1875–1940
Árið 1928 stóð Chrysler fyrir samruna
Chrysler-félagsins
við Dodge og hóf síðan að reisa
Chrysler-bygginguna
1929
Owen D. Young
1874–1962
Young var formaður nefndar sem samdi árið 1929
Young-áætlunina
til að auðvelda Þjóðverjum að greiða stríðsskaðabætur vegna
fyrri heimsstyrjaldarinnar
1930
Mahatma Gandhi
1869–1948
Gandhi var leiðtogi
indversku sjálfstæðishreyfingarinnar
. Árið 1930 leiddi hann 400 km mótmælagöngu gegn lagningu saltskatts í
breska Indlandi
1931
Pierre Laval
1883–1945
Laval var kjörinn
forsætisráðherra Frakklands
árið 1931. Laval var vinsæll í bandarískum fjölmiðlum á þessum tíma fyrir að andmæla
Hoover-stöðvuninni
, tímabundinni frystingu á greiðslu stríðsskaðabóta úr fyrri heimsstyrjöldinni sem var óvinsæl bæði í Frakklandi og Bandaríkjunum.
1932
Franklin D. Roosevelt
1882–1945
Roosevelt vann stórsigur í
forsetakosningum Bandaríkjanna árið 1932
á móti sitjandi forsetanum
Herbert Hoover
1933
Hugh S. Johnson
1882–1942
Árið 1933 var Johnson útnefndur framkvæmdastjóri viðreisnarframkvæmdaráðs Bandaríkjanna. Franklin D. Roosevelt forseti fól honum að sameina iðnað, verkalýð og ríkisstjórn til að semja reglur um „sanngjörn vinnubrögð“ og staðlað verðlag.
1934
Franklin D. Roosevelt
(2)
1882–1945
Roosevelt var
forseti Bandaríkjanna
frá 1933 til 1945. Árið 1934 var aðgerðaáætlun hans,
nýja gjöfin
, farin að bera ávöxt.
1935
Haile Selassie
1892–1975
Selassie var
Eþíópíukeisari
árið 1935, þegar Ítalir réðust inn í landið og hófu
annað stríð Ítalíu og Eþíópíu
1936
Wallis Simpson
1896–1986
Árið 1936 leiddi samband Simpsons við
Játvarð 8. Bretlandskonung
til þess að konungurinn sagði af sér til að geta kvænst henni.
1937
Chiang Kai-shek
1887–1975
Chiang var forsætisráðherra Lýðveldisins Kína við upphaf
seinna stríðs Kína og Japans
árið 1937.
Soong Mei-ling
1898–2003
Soong var eiginkona Chiangs Kai-shek frá 1927 þar til hann lést árið 1975. Í blaðinu var hún kölluð Frú Chiang Kai-shek og þau voru bæði heiðruð í blaðinu sem „hjón ársins“.
1938
Adolf Hitler
1889–1945
Sem
kanslari Þýskalands
stóð Hitler árið 1938 fyrir sameiningu landsins við
Austurríki
og
Súdetaland
með
Anschluss
-ferlinu annars vegar og
Münchenarsamkomulaginu
hins vegar. Í stað venjulegrar portrettmyndar var forsíðan skreytt teikningu eftir
Rudolph von Ripper
sem bar titilinn „Hitler leikur haturssálminn“.
1939
Jósef Stalín
1878–1953
Árið 1939 var Stalín
aðalritari sovéska kommúnistaflokksins
og í reynd leiðtogi Sovétríkjanna. Hann stóð fyrir undirritun
griðasáttmála
við
þriðja ríkið
og síðan fyrir sameiginlegri
innrás í Pólland
1940
Winston Churchill
1874–1965
Churchill var
forsætisráðherra Bretlands
árið 1940 í
flóttanum frá Dunkerque
og
orrustunni um Bretland
1941
Franklin D. Roosevelt
(3)
1882–1945
Roosevelt var
forseti Bandaríkjanna
árið 1941 þegar
árásin á Perluhöfn
var gerð og Bandaríkin gengu inn í
seinni heimsstyrjöldina
. Ritstjórn blaðsins var búin að velja teiknimyndapersónuna
Dúmbó
fyrir forsíðuna sem „spendýr ársins“ áður en árásin var gerð en eftir hana var ákveðið að setja Roosevelt í staðinn.
1942
Jósef Stalín
(2)
1878–1953
Árið 1942 var Stalín bæði
aðalritari sovéska kommúnistaflokksins
og
forsætisráðherra Sovétríkjanna
og stýrði ríkinu á meðan
orrustan um Stalíngrad
var háð.
1943
George Marshall
1880–1959
Sem yfirmaður hershöfðingjaráðs Bandaríkjahers lék Marshall árið 1943 lykilhlutverk í skipulagningu heráætlunar Bandaríkjamanna í seinni heimsstyrjöldinni.
1944
Dwight D. Eisenhower
1890–1969
Eisenhower var æðsti herleiðtogi bandamanna í Evrópu við
innrásina í Normandí
1944.
1945
Harry S. Truman
1884–1972
Truman varð forseti Bandaríkjanna eftir dauða Franklins D. Roosevelt árið 1945 og skipaði
kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki
1946
James F. Byrnes
1879–1972
Byrnes var utanríkisráðherra Bandaríkjanna í
Íransdeilunni 1946
og tók æ harðari afstöðu gegn Stalín. Í
ræðu sinni um stefnu Bandaríkjanna í garð Þýskalands
lagði hann línurnar fyrir utanríkisstefnu landsins á komandi árum, hafnaði
Morgenthau-áætluninni
og gaf Þjóðverjum von um betri framtíð.
1947
George Marshall
(2)
1880–1959
Marshall var útnefndur utanríkisráðherra Bandaríkjanna árið 1947 og var einn af hönnuðum
Marshalláætlunarinnar
1948
Harry S. Truman
(2)
1884–1972
Truman var sjálfur kjörinn Bandaríkjaforseti
árið 1948
, sem var talinn einn óvæntasti kosningasigur í sögu Bandaríkjanna.
1949
Winston Churchill
(2)
1874–1965
Churchill var lýstur „maður hálfaldarinnar“ eftir að hafa leitt Bretland og bandamenn til sigurs í seinni heimsstyrjöldinni. Árið 1949 var Churchill leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Bretlandi.
1950
Bandaríski hermaðurinn
Í nafni bandarískra hermanna í
Kóreustríðinu
(1950–1953).
1951
Múhameð Mossadek
1882–1967
Árið 1951 var Mossadek kjörinn forsætisráðherra
Írans
. Hann rak vestræn olíufélög frá landinu og hóf þannig
Abadankreppuna
1952
Elísabet 2.
1926–2022
Árið 1952 tók Elísabet við krúnu
Bretlands
og
breska samveldisins
eftir dauða föður síns,
Georgs 6. konungs
1953
Konrad Adenauer
1876–1967
Árið 1953 var Adenauer endurkjörinn
kanslari Vestur-Þýskalands
1954
John Foster Dulles
1888–1959
Sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna árið 1954 var Dulles hönnuður
Suðaustur-Asíubandalagsins
1955
Harlow Curtice
1893–1962
Curtice var forseti
General Motors
(GM) frá 1953 til 1958. Árið 1955 seldi GM fimm milljónir farartækja og varð fyrst fyrirtækja til að þéna heilan milljarð Bandaríkjadollara á einu ári.
10
1956
Ungverski frelsisbaráttumaðurinn
Í nafni byltingarmanna sem tóku þátt í
uppreisninni árið 1956
1957
Níkíta Khrústsjov
1894–1971
Árið festi Khrústsjov sig í sessi sem leiðtogi Sovétríkjanna með því að klekkja á tilraun forsætisnefndarinnar til að bola honum frá völdum. Hann leiddi Sovétríkin jafnframt inn í
geimkapphlaupið
með skoti
Spútnik 1
á sporbaug.
1958
Charles de Gaulle
1890–1970
De Gaulle var útnefndur
forsætisráðherra Frakklands
í maí árið 1958 og eftir hrun
fjórða lýðveldisins
og stofnun
fimmta lýðveldisins
var hann kjörinn
forseti landsins
í desember.
1959
Dwight D. Eisenhower
(2)
1890–1969
Eisenhower var forseti Bandaríkjanna frá 1953 til 1961.
1960
Bandarískir vísindamenn
Í nafni
George Beadle
Charles Draper
John Enders
Donald A. Glaser
Joshua Lederberg
Willard Libby
Linus Pauling
Edward Purcell
Isidor Rabi
Emilio Segrè
William Shockley
Edward Teller
Charles Townes
James Van Allen
og
Robert Woodward
1961
John F. Kennedy
1917–1963
Kennedy var svarinn í forsetaembætti Bandaríkjanna árið 1961 og skipaði
innrásina í Svínaflóa
síðar sama ár.
1962
Jóhannes 23.
1881–1963
Jóhannes 23. var
páfi
rómversk-kaþólsku kirkjunnar
frá 1958 til 1963. Árið 1962 bauðst hann til að miðla málum í
Kúbudeilunni
og vann sér hylli beggja deiluaðila. Hann hóf jafnframt
síðara Vatíkanþingið
sama ár.
1963
Martin Luther King, Jr.
1929–1968
King var leiðtogi í
réttindabaráttu bandarískra blökkumanna
og flutti ræðuna frægu „Ég á mér draum“ árið 1963.
1964
Lyndon B. Johnson
1908–1973
Johnson var kjörinn
forseti Bandaríkjanna
árið 1964, tryggði framgang
réttindafrumvarpsins
síðar sama ár, lýsti yfir
stríði gegn fátækt
og jók afskipti Bandaríkjamanna af
Víetnamstríðinu
1965
William Westmoreland
1914–2005
Westmoreland hershöfðingi var leiðtogi Bandaríkjahers í
Suður-Víetnam
í Víetnamstríðinu.
1966
Arftakinn
Í nafni kynslóðar bandarískra ungmenna á og undir 25 ára aldri.
1967
Lyndon B. Johnson
(2)
1908–1973
Johnson var forseti Bandaríkjanna frá 1963 til 1969.
1968
Geimfararnir
Apollo 8
Árið 1968 varð áhöfn Apollo 8 (
William Anders
Frank Borman
og
Jim Lovell
) fyrst til þess að ferðast út fyrir lága sporbraut um jörðina. Hún fór á sporbraut um tunglið og ruddi þannig brautina fyrir fyrstu mönnuðu tunglferðina árið 1969.
1969
Mið-Bandaríkjamenn
Einnig kallaðir „
þögli meirihlutinn
“.
11
1970
Willy Brandt
1913–1992
Sem kanslari
Vestur-Þýskalands
varð Brandt kunnur fyrir að „reyna að stofna til fersks sambands milli austurs og vesturs“ með „
djarfri nálgun sinni
á Sovétríkin og Austurblokkina“.
12
1971
Richard Nixon
1913–1994
Nixon var forseti Bandaríkjanna frá 1969 til 1974.
1972
Richard Nixon
(2)
1913–1994
Nixon fór í
heimsókn til Kína
árið 1972, fyrstur Bandaríkjaforseta. Nixon samdi jafnframt um
SALT I-samninginn
við Sovétríkin og vann síðan endurkjör í
forsetakosningum í lok ársins
með einum stærsta atkvæðamun í sögu Bandaríkjanna.
Henry Kissinger
1923–2023
Sem þjóðaröryggisráðgjafi forsetans fór Kissinger með Nixon til Kína árið 1972.
1973
John Sirica
1904–1992
Sem yfirmaður héraðsdómstólsins í Colombia-umdæmi skipaði Sirica árið 1973 Nixon forseta að afhenda hljóðupptökur af samræðum í
Hvíta húsinu
í tengslum við
Watergate-málið
1974
Feisal konungur
1906–1975
Feisal,
konungur Sádi-Arabíu
, orsakaði
olíukreppuna 1973
með því að draga sádiarabíska olíu af heimsmörkuðum til að mótmæla stuðningi vesturlanda við
Ísrael
jom kippúr-stríðinu
1975
Bandaríkjakonur
Í nafni
Susan Brownmiller
Kathleen Byerly
Alison Cheek
Jill Conway
Betty Ford
Ellu Grasso
Cörlu Hills
Barböru Jordan
Billie Jean King
Carol Sutton
Susie Sharp
og
Addie Wyatt
1976
Jimmy Carter
1924–2024
forsetakosningum árið 1976
sigraði Carter sitjandi forsetann
Gerald Ford
og var kjörinn forseti Bandaríkjanna.
1977
Anwar Sadat
1918–1981
Sem
forseti Egyptalands
varð Sadat fyrsti arabíski leiðtoginn sem ferðaðist til Ísraels árið 1977 til að ræða friðarsamning og stjórnmálasamband milli Ísraela og Egypta.
1978
Deng Xiaoping
1904–1997
Varaforsætisráðherra Kína. Deng steypti
Hua Guofeng
af stóli og varð í reynd
æðsti stjórnandi Kína
árið 1978.
1979
Ruhollah Khomeini
1902–1989
Khomeini leiddi
írönsku byltinguna
og tók sjálfum sér vald sem
æðsti leiðtogi Írans
1980
Ronald Reagan
1911–2004
Reagan vann sigur á móti sitjandi forsetanum
Jimmy Carter
kosningum árið 1980
og var kjörinn nýr
forseti Bandaríkjanna
1981
Lech Wałęsa
Fæddur 1943
Leiðtogi pólska verkalýðsfélagsins
Samstöðu
og hönnuður
Gdańsk-samkomulagsins
þar til hann var handtekinn og
herlögum
var lýst í desember 1981.
1982
Tölvan
Lýst vél ársins til að boða upphaf upplýsingaaldar.
1983
Ronald Reagan
(2)
1911–2004
Árið 1983 skipaði Reagan, sem
forseti Bandaríkjanna
innrásina í Grenada
og kynnti
Geimvarnaráætlun Bandaríkjanna
Júríj Andropov
1914–1984
Andropov, sem var
aðalritari sovéska kommúnistaflokksins
, var afar gagnrýninn á geimvarnaráætlun Reagans. Andropov var lagður inn á sjúkrahús í ágúst 1983 og lést næsta ár.
1984
Peter Ueberroth
Fæddur 1937
Ueberroth stýrði skipulagningu
Sumarólympíuleikanna 1984
, sem
voru sniðgengnir
af Sovétmönnum.
1985
Deng Xiaoping
(2)
1904–1997
Sem
æðsti leiðtogi Kína
varð Deng kunnur fyrir „yfirgripsmiklar efnahagsumbætur sem hafa gengið gegn marxískri rétthugsun“.
13
1986
Corazon Aquino
1933–2009
Aquino var einn af leiðtogum byltingarinnar í Filippseyjum 1986 og var kjörin forseti Filippseyja sama ár.
1987
Míkhaíl Gorbatsjov
1931–2022
Sem aðalritari sovéska kommúnistaflokksins og leiðtogi Sovétríkjanna stýrði Gorbatsjov stjórnarumbótunum
perestrojka
árið 1987.
1988
Jörðin
Valin „pláneta ársins“ með vísun í
móður náttúru
1989
Míkhaíl Gorbatsjov
(2)
1931–2022
Lýstur „maður áratugarins“. Sem
aðalritari sovéska kommúnistaflokksins
stóð Gorbatsjov fyrir fyrstu frjálsu kosningum
Sovétríkjanna
í aðdraganda upplausnar
Austurblokkarinnar
1990
George H. W. Bush
1924–2018
Sem
forseti Bandaríkjanna
stóð Bush fyrir inngripi Bandaríkjanna í
Persaflóastríðið
(1990–1991).
1991
Ted Turner
Fæddur 1938
Stofnandi
CNN
. Í greininni var áhersla lögð á umfjöllun CNN um
Eyðimerkurstormsaðgerðina
og
Persaflóastríðið
og þar talað um „söguna í mótun“.
1992
Bill Clinton
Fæddur 1946
Clinton sigraði sitjandi forsetann
George H. W. Bush
forsetakosningum árið 1992
og var kjörinn
forseti Bandaríkjanna
1993
Friðarsinnarnir
Vísað var til
Yassers Arafat
F. W. de Klerk
Nelsons Mandela
og
Yitshaks Rabin
Sem
ríkisforseti Suður-Afríku
hafði De Klerk látið leysa Mandela úr fangelsi árið 1990 og þeir höfðu síðan unnið saman að því að binda enda á
aðskilnaðarstefnuna í landinu
Arafat, sem
forseti palestínsku heimastjórnarinnar
, og Rabin, sem
forsætisráðherra Ísraels
, skrifuðu árið 1993 undir
Óslóarsamkomulagið
, sem var fyrsta samkomulagið sem ráðamenn Palestínu og Ísraels gerðu augliti til auglitis.
1994
Jóhannes Páll 2.
1920–2005
Páfi
rómversk-kaþólsku kirkjunnar
frá 1978 til 2005.
1995
Newt Gingrich
Fæddur 1943
Leiðtogi „Repúblikanabyltingarinnar“, stórsigurs
Repúblikanaflokksins
í þingkosningum Bandaríkjanna árið 1994 sem leiddi til þess að Gingrich var kjörinn
forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
1996
David Ho
Fæddur 1952
Vísindamaður og frumkvöðull í rannsóknum á
alnæmi
1997
Andrew Grove
1936–2016
Árið 1997 var Grove formaður og framkvæmdastjóri
Intel
, brautryðjandafyrirtækis í
hálfleiðaraiðnaðinum
3 í öðru sæti
Díana prinsessa
Alan Greenspan
Ian Wilmut
14
1998
Bill Clinton
(2)
Fæddur 1946
Sem
forseti Bandaríkjanna
var Clinton
kærður til embættismissis
árið 1998 vegna
Lewinsky-hneykslisins
Öldungadeild Bandaríkjaþings
sýknaði hann af ákærunni.
Ken Starr
1946–2022
Starr, lögfræðingur sem rannsakaði ýmsa starfsmenn Clinton-stjórnarinnar, birti
Starr-skýrsluna
árið 1998 og ruddi þannig veginn fyrir ákæruferlið gegn Bill Clinton.
1999
Jeff Bezos
Fæddur 1964
Bezos er stofnandi og framkvæmdastjóri
Amazon.com
2000
George W. Bush
Fæddur 1946
Árið 2000 sigraði Bush sitjandi varaforsetann
Al Gore
kosningum
og var kjörinn forseti Bandaríkjanna
2001
Rudy Giuliani
Fæddur 1944
Giuliani var borgarstjóri
New York-borgar
þegar
hryðjuverkin 11. september 2001
voru framin og var valinn sem tákn fyrir viðbrögðum Bandaríkjamanna við árásinni.
2002
Uppljóstrararnir
Í nafni
Cynthiu Cooper
Coleen Rowley
og
Sherron Watkins
Árip 2001 afhjúpaði Watkins bókhaldssvik í fjármálaskýrslum
Enron
og bar vitni fyrir þingnefnd næsta ár. Árið 2002 upplýsti Cooper 3,8 milljarða dollar fjársvik hjá
WorldCom
. Á þeim tíma voru þetta umfangsmestu bókhaldssvik í sögu Bandaríkjanna. Árið 2002 bar Rowley, starfsmaður hjá
bandarísku alríkislögreglunni
(FBI), vitni um misferli í meðhöldlun FBI á gögnum í tengslum við hryðjuverkin 11. september 2001.
2003
Bandaríski hermaðurinn
(2)
Í nafni bandarískra hermanna um allan heim, sérstaklega í
Íraksstríðinu
(2003–2011).
2004
George W. Bush
(2)
Fæddur 1946
Árið 2004 vann Bush endurkjör sem forseti Bandaríkjanna og leiddi Bandaríkin í Íraksstríðinu.
2005
Miskunnsömu Samverjarnir
Í nafni
Bono
Bills Gates
og
Melindu Gates
Bono, mannvinur og meðlimur í rokkhljómsveitinni
U2
, hjálpaði við skipulagningu
Live 8-tónleikanna
árið 2005. Bill Gates, stofnandi Microsoft og ríkasti maður heims, og eiginkona hans, Melinda, settu á fót hjálparstofnunina
Bill & Melinda Gates Foundation
2006
Þú
15
Í nafni sjálfstæðra útgefenda á
internetinu
4 í öðru sæti
Mahmoud Ahmadinejad
Hu Jintao
Kim Jong-il
James Baker
16
2007
Vladímír Pútín
17
Fæddur 1952
Árið 2007 var Pútín að ljúka öðru kjörtímabili sínu sem
forseti Rússlands
og búa sig undir embættistöku sem
forsætisráðherra
4 í öðru sæti
Al Gore
J. K. Rowling
Hu Jintao
David Petraeus
18
2008
Barack Obama
19
Fæddur 1961
Árið 2008 sigraði Obama
John McCain
forsetakosningum
og var kjörinn
forseti Bandaríkjanna
4 í öðru sæti
Henry Paulson
Nicolas Sarkozy
Sarah Palin
Zhang Yimou
20
2009
Ben Bernanke
21
Fæddur 1953
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna
á tíma
fjármálakreppunnar 2007–08
4 í öðru sæti
Stanley McChrystal
Kínverski verkamaðurinn
Nancy Pelosi
Usain Bolt
22
2010
Mark Zuckerberg
23
Fæddur 1984
Stofnandi samfélagsmiðilsins
4 í öðru sæti
Teboðshreyfingin
Hamid Karzai
Julian Assange
Sílesku námuverkamennirnir
24
2011
Mótmælandinn
25
Í nafni ýmissa mótmælahreyfinga um allan heim, þ. á m.
arabíska vorsins
hreyfingar hinna grömu
Occupy-hreyfingarinnar
Teboðshreyfingarinnar
ásamt mótmælum í
Síle
Grikklandi
Indlandi
og
Rússlandi
o. fl.
4 í öðru sæti
William McRaven
Ai Weiwei
Paul Ryan
Kate Middleton
26
2012
Barack Obama
(2)
27
Fæddur 1961
Árið 2012 var Obama endurkjörinn forseti Bandaríkjanna í
kosningum
á móti
Mitt Romney
4 í öðru sæti
Malala Yousafzai
Tim Cook
Múhameð Morsi
Fabiola Gianotti
28
2013
Frans páfi
29
1936–2025
Frans varð
páfi
rómversk-kaþólsku kirkjunnar
árið 2013 eftir afsögn
Benedikts 16.
páfa.
4 í öðru sæti
Edward Snowden
Edith Windsor
Bashar al-Assad
Ted Cruz
30
2014
Baráttumenn gegn
ebólu
31
Átt var við heilbrigðisstarfsmenn sem unnu að því að hefta útbreiðslu
ebólu
ebólufaraldrinum í Vestur-Afríku
. Þar á meðal voru ekki aðeins læknar og hjúkrunarfræðingar heldur einnig sjúkrabílstjórar, greftrunarstarfsmenn og fleiri.
32
Á forsíðunum birtust dr. Jerry Brown, framkvæmdastjóri Eternal Love Winning Africa-spítalans í
Monróvíu
Líberíu
33
34
dr.
Kent Brantly
, læknir hjá hjálparsamtökunum
Samaritan's Purse
og fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem sýktist í faraldrinum 2014,
34
35
Ella Watson-Stryker, heilbrigðistalsmaður hjá
Læknum án landamæra
34
36
Foday Gallah, sjúkrabílstjóri í Monróvíu sem lifði af ebólusýkingu
34
37
og
Salome Karwah
, líberískur heilbrigðisráðgjafi og hjúkrunarfræðingur í þjálfun sem missti foreldra sína vegna sjúkdómsins.
34
38
Fleiri nafna var getið í greininni sjálfri, meðal annars dr. Pardis Sabeti frá Broad-stofnuninni.
4 í öðru sæti
Ferguson-mótmælendurnir
Vladímír Pútín
Masoud Barzani
Jack Ma
31
2015
Angela Merkel
Fædd 1954
Kanslari Þýskalands
frá 2005, valin vegna forystu hennar í
grísku skuldakreppunni
og
evrópsku flóttamannakreppunni
39
6 í öðru sæti
Abu Bakr al-Baghdadi
Donald Trump
Black Lives Matter
Hassan Rouhani
Travis Kalanick
Caitlyn Jenner
40
41
42
43
44
45
2016
Donald Trump
Fæddur 1946
Árið 2016 vann Trump
forsetakosningar
á móti
Hillary Clinton
og var kjörinn forseti Bandaríkjanna.
5 í öðru sæti
Hillary Clinton
Hakkararnir
Recep Tayyip Erdoğan
CRISPR-frumkvöðlarnir
Beyoncé
46
47
48
49
50
2017
Konurnar sem rufu þögnina
Einstaklingar sem greindu frá kynferðislegri áreitni, meðal annars leiðtogar
Me too-hreyfingarinnar
. Á forsíðunni birtust jarðarberjatínslukonan Isabel Pascual (dulnefni), hagsmunafulltrúinn Adama Iwu, leikkonan
Ashley Judd
, hugbúnaðarverkfræðingurinn
Susan Fowler
, söngkonan og lagahöfundurinn
Taylor Swift
, og sjötta konan, sjúkrahússtarfsmaður sem fór fram á nafnleynd og sést því ekki framan í. Í meðfylgjandi grein var einnig fjallað um leikkonuna
Alyssu Milano
, aðgerðasinnann
Tarönu Burke
, leikkonuna
Selmu Blair
, ákærendurna sjö í málssókninni gegn
Plaza-hótelinu
, stjórnmálakonuna
Söru Gesler
, athafnakonuna Lindsay Meyer, uppvaskarann Söndru Pezqueda, leikkonuna Rose McCowan, sálfræðinginn og rithöfundinn
Wendy Walsh
, bloggarann Lindsey Reynolds, húsþernuna Juönu Melara, blaðakonuna Söndru Muller, leikarann
Terry Crews
, prófessorana
Celeste Kidd
og
Jessicu Cantlon
við
Rochester-háskóla
, blaðakonuna
Megyn Kelly
, blaðakonuna
Jane Merrick
, framleiðandann Zeldu Perkins, Evrópuþingkonuna
Terry Reintke
, hjálparstarfsmanninn Bex Bailey, sýningarstjórann Amöndu Schmitt, kvikmyndagerðarkonuna
Blaise Godbe Lipman
, og ónafngreinda fyrrum aðstoðarkonu á skrifstofu.
51
52
6 í öðru sæti
Donald Trump
Xi Jinping
Robert Mueller
Kim Jong-un
Colin Kaepernick
Patty Jenkins
53
54
55
56
57
58
2018
Verðirnir
Blaðamenn sem sættu ofsóknum, handtöku eða lífláti fyrir fréttaflutning sinn. Á fjórum forsíðuútgáfum birtust:
Jamal Khashoggi
, pistlahöfundur hjá
Washington Post
sem var myrtur vegna gagnrýni sinnar á
krónprins Sádi-Arabíu
Maria Ressa
, ritstjóri filippseysku fréttavefsíðunnar
Rappler
, sem var ákærð vegna gagnrýninnar umfjöllunar sinnar um ofbeldisfullar stefnur
forseta landsins
Wa Lone
og
Kyaw Soe Oo
, blaðamenn
Reuters
sem handteknir voru í Mjanmar við rannsóknir á fjöldamorðum gegn
Róhingjum
Starfsfólk
The Capital
, fréttablaðs í
Maryland
sem varð fyrir byssuárás á skrifstofu sína þar sem fimm starfsmenn létu lífið.
59
Í meðfylgjandi grein var einnig fjallað um eftirfarandi blaðamenn:
Shahidul Alam
frá Bangladess,
Nguyễn Ngọc Như Quỳnh
frá Víetnam, Dulcina Parra frá Mexíkó,
Luz Mely Reyes
frá Venesúela,
Can Dündar
frá Tyrklandi,
Tatjana Felgenhaúer
frá Rússlandi, Amal Habani frá Súdan og
Arkadíj Babtsjenko
frá Rússlandi.
60
6 í öðru sæti
Donald Trump
Robert Mueller
Aðgerðasinnarnir
Moon Jae-in
Ryan Coogler
Meghan Markle
61
62
63
64
65
66
2019
Greta Thunberg
Fædd 2003
Umhverfisaðgerðasinni og stofnandi
skólaverkfalla fyrir loftslagið
67
4 í öðru sæti
Donald Trump
Nancy Pelosi
Mótmælendurnir í Hong Kong
Uppljóstrarinn í Úkraínumálinu
68
2020
Joe Biden
69
Fæddur 1942
Árið 2020 voru Biden og Harris kjörin
forseti
og
varaforseti Bandaríkjanna
kosningum
gegn sitjandi forsetanum
Donald Trump
og varaforsetanum
Mike Pence
70
3 í öðru sæti
Donald Trump
Anthony Fauci
og framlínumenn í heilbrigðisþjónustunni
Hreyfingin fyrir kynþáttaréttlæti
71
Kamala Harris
69
Fædd 1964
2021
Elon Musk
72
Fæddur 1971
Framkvæmdastjóri
Tesla, Inc.
, stofnandi
SpaceX
, og ríkasti maður í heimi árið 2021.
2022
Volodymyr Zelenskyj
og
andi Úkraínu
73
Fæddur 1978
Zelenskyj hefur verið forseti Úkraínu frá árinu 2019 og hefur leitt þjóðina í
innrás Rússa í Úkraínu 2022
. „Andi Úkraínu“ vísar til þrautsegju úkraínsku þjóðarinnar og andspyrnu þeirra gegn innrásarhernum.
9 í öðru sæti
Xi Jinping
Hæstiréttur Bandaríkjanna
Elon Musk
Liz Cheney
MacKenzie Scott
Mótmælendur í Íran
Ron DeSantis
Janet Yellen
Baráttufólk fyrir byssuöryggi
74
2023
Taylor Swift
Fædd 1989
Swift hafði áður verið meðal „þeirra sem rufu þögnina“ sem voru lýst manneskja ársins 2017.
75
9 í öðru sæti
Verkfallsmenn í Hollywood
Xi Jinping
Elon Musk
Sam Altman
Ákærendur gegn Donald Trump
Barbie
Vladímír Pútín
Karl 3. Bretakonungur
Jerome Powell
2024
Donald Trump
(2)
Fæddur 1946
Árið 2024 vann Trump
forsetakosningar
á móti
Kamölu Harris
og var kjörinn forseti Bandaríkjanna.
10 í öðru sæti
Kamala Harris
Katrín prinsessa af Wales
Elon Musk
Júlía Navalnaja
Benjamín Netanjahú
Jerome Powell
Joe Rogan
Claudia Sheinbaum
Mark Zuckerberg
76
2025
Arkitektar
gervigreindarinnar
Vísað var til arkitektanna á bak við öra þróun
gervigreindartækninnar
77
Einstaklingarnir sem vísað var til voru, í stafrófsröð:
Sam Altman
, forstjóri
OpenAI
Dario Amodei
, forstjóri
Anthropic
Demis Hassabis
, forstjóri
Google DeepMind
Jensen Huang
, forstjóri
Nvidia
Fei-Fei Li
, stofnandi
ImageNet
Elon Musk
, forstjóri
xAI
(2)
Lisa Su
, forstjóri
AMD
Mark Zuckerberg
, forstjóri
Meta Platforms
(2)
Tenglar
breyta
breyta frumkóða
Björn Reynir Halldórsson (25. september 2014).
„Hvers vegna var Hitler valinn maður ársins?“
Vísindavefurinn
. Sótt 6. febrúar 2024
Tilvísanir
breyta
breyta frumkóða
Person of the Year: 75th Anniversary Celebration
(Special Collector's. útgáfa). New York: Time Books. 2002.
OCLC
52817840
Time
(2002),
Person of the Year: 75th Anniversary Celebration
, p. 1.
„Original
Time
article“
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13 ágúst 2013
. Sótt 14 október 2020
Joan Levenstein.
„Mme Chiang Kai-Shek: 1937“
Time
. Sótt 7. desember 2016
Kluger, Jeffrey
„130 Years After Hitler's Birth, He Continues to Live as a Symbol of Evil“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 22 maí 2020
. Sótt 14 október 2020
„The Timely "Dumbo": Almost a Cover Boy“
Walt Disney Family Museum
. 16 maí 2011
. Sótt 7. desember 2017
American Experience
„General Article: Presidential Politics“
. pbs.org. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 21 febrúar 2017
. Sótt 14 október 2020
Susan Rosegrant (18 apríl 2012).
University of Michigan
(ritstjóri).
„ISR and the Truman/Dewey upset“
. isr.umich.edu. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 2 apríl 2013.
Ben Cosgrove (21 október 2012).
„Behind the Picture: 'Dewey Defeats Truman'
. Time Magazine. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 5 maí 2015
. Sótt 14 október 2020
„Harlow H. Curtice is dead at 69“
The New York Times
. 4 nóvember 1962
. Sótt 6 október 2009
(fee for article)
Larsen, Roy (5 janúar 1970).
„A Letter From The Publisher“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 22 ágúst 2013
. Sótt 14 október 2020
"Willy Brandt", Time Magazine, January 4, 1971,
online archive
óvirkur tengill
. Retrieved July 11, 2007.
Jennings Parrott (30. desember 1985).
„Time Picks China's Deng Xiaoping as Man of the Year“
Los Angeles Times
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 3. desember 2013
. Sótt 14 október 2020
„Man of the Year 1997“
Time
Afrit
af uppruna á 16 febrúar 2017
. Sótt 16 febrúar 2017
Lev Grossman (13. desember 2006).
„You – Yes, You – Are Time's Person of the Year“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24 ágúst 2013
. Sótt 20. desember 2012
NBC News Staff (17. desember 2006).
„Time magazine's 'Person of the Year' is ... You“
Time
„Person of the Year 2007“
Time
. 2007. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24 ágúst 2013
. Sótt 8 júlí 2009
Time Staff (19. desember 2007).
„Complete List – Person of the Year 2007“
Time
Von Drehle, David (17. desember 2008).
„Person of the Year 2008“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 29 apríl 2009
. Sótt 17. desember 2008
Time Staff (17. desember 2008).
„Person of the Year 2008“
Time
Grunwald, Michael (16. desember 2009).
„Person of the Year 2009“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 26 ágúst 2013
. Sótt 16. desember 2009
Time Staff (16. desember 2009).
„Person of the Year 2009“
Time
Grossman, Lev (15. desember 2010).
„Person of the Year 2010“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 15. desember 2010
. Sótt 15. desember 2010
Time Staff (15. desember 2010).
„Complete List – Person of the Year 2010“
Time
Grunwald, Michael (14. desember 2011).
„Person of the Year 2011“
Time
. Sótt 14. desember 2011
Time Staff (14. desember 2011).
„Complete List – Person of the Year 2011“
Time
Michael Scherer (19. desember 2008).
„Person of the Year 2012“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 19. desember 2012
. Sótt 23. desember 2012
„Person of the Year 2012“
Time
. 19. desember 2012. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 21 janúar 2019
. Sótt 20 janúar 2019
„Pope Francis, The People's Pope“
Time
. 11. desember 2013. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 11 ágúst 2016
. Sótt 11. desember 2013
„Pope Francis: Person of the Year 2013“
Time
. 11. desember 2013. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 7. desember 2014
. Sótt 14 október 2020
„The Choice“
Time
. 10. desember 2014. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 27 febrúar 2018
. Sótt 10. desember 2014
Eliott C. McLaughlin (10. desember 2014).
„Ebola fighters are Time's 'Person of the Year'
CNN
. Sótt 25 júlí 2015
„Image: 1418243285733.jpg, (300 × 400 px)“
The Sydney Morning Herald
„Time Person of the Year 2014: Ebola Fighters“
Time.com
. 10. desember 2014. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 4. mars 2021
. Sótt 25 júlí 2015
„Image: article-time2-1210.jpg (970 × 1293 px)“
Daily News
. New York. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 4. mars 2016
. Sótt 14 október 2020
„Image: 1D274907403248-ella.blocks_desktop_large.jpg, (730 × 974 px)“
. media2.s-nbcnews.com
. Sótt 23. september 2015
„Image: 1D274907403249-foday.blocks_desktop_large.jpg, (730 × 974 px)“
. media2.s-nbcnews.com
. Sótt 23. september 2015
„Image: 1D274907403247-salome.blocks_desktop_large.jpg, (730 × 974 px)“
. media4.s-nbcnews.com
. Sótt 23. september 2015
Nancy Gibbs (9. desember 2015).
„The Choice: Why Angela Merkel is Time's Person of the Year 2015“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 14 júlí 2018
. Sótt 14 október 2020
„Time Person of the Year 2015 Runner-Up: Abu Bakr al-Baghdadi“
Time
. 9. desember 2015.
„Time uPerson of the Year 2015 Runner-Up: Donald Trump“
Time
. 9. desember 2015. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 16. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Time Person of the Year 2015 Runner-Up: Black Lives Matter“
Time
. 9. desember 2015. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 16. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Time Person of the Year 2015 Runner-Up: Hassan Rouhani“
Time
. 9. desember 2015. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 16. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Time Person of the Year 2015 Runner-Up: Travis Kalanick“
Time
. 9. desember 2015. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 27. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Time Person of the Year 2015 Runner-Up: Caitlyn Jenner“
Time
. 9. desember 2015. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 19. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Hillary Clinton: Time Person of the Year 2016 Runner Up“
Time
. 7. desember 2016. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 14. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Hackers: Time Person of the Year 2016 Runner Up“
Time
. 7. desember 2016. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 19. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Recep Tayyip Erdogan: Turkish President Who Resisted a Coup“
Time
. 7. desember 2016. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 26. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„CRISPR Technology Scientists on Their Gene Editing Tool“
Time
. 7. desember 2016. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 18. desember 2023
. Sótt 14 október 2020
„Beyonce: Time Person of the Year 2016 Runner Up“
Time
. 7. desember 2016. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 22 júlí 2018
. Sótt 14 október 2020
Zacharek, Stephanie; Dockterman, Eliana; Edwards, Haley Sweetland.
„Time Person of the Year 2017: The Silence Breakers“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13 ágúst 2018
. Sótt 6. desember 2017
Time Person of the Year 2017: The Silence Breakers
, POY video posted by TIME to YouTube on Dec 6, 2017
„Donald Trump: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 16. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Xi Jinping: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 8. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Robert Mueller: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 18. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Kim Jong Un: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 20. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Colin Kaepernick: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 26. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Patty Jenkins: Time Person of the Year 2017 Runner Up“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 10. desember 2017
. Sótt 21 janúar 2019
Kim, Eun Kyung (11. desember 2018).
„Time's 2018 Person of the Year: 'The Guardians and the War on Truth'
Today Show
. Sótt 11. desember 2018
Vick, Karl.
„Time Person of the Year 2018: The Guardians“
Time
(bandarísk enska). Afrit af
upprunalegu
geymt þann 19 ágúst 2019
. Sótt 12. desember 2018
„Donald Trump: Time Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 11. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24 janúar 2024
. Sótt 21 janúar 2019
„Robert Mueller: Tine Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 11. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24 janúar 2024
. Sótt 21 janúar 2019
„The Activists: Time Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 10. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 7. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
„Moon Jae-in: Time Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 10. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 15 janúar 2024
. Sótt 21 janúar 2019
„Ryan Coogler: Time Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 10. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24 janúar 2024
. Sótt 21 janúar 2019
„Meghan Markle: Time Person of the Year 2018 Runner Up“
Time
. 10. desember 2018. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13. desember 2023
. Sótt 21 janúar 2019
Alter, Charlotte; Haynes, Suyin; Worland, Justin.
„Greta Thunberg: Time's Person of the Year 2019“
Time
(bandarísk enska). Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13. desember 2019
. Sótt 12. desember 2019
„Final 5 candidates for Time Person of the Year revealed on Today“
Today.com
(enska)
. Sótt 11. desember 2019
Alter, Charlotte (11. desember 2020).
„2020 Person of the Year - Joe Biden and Kamala Harris“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13. desember 2020
. Sótt 11. desember 2020
„Presidential Election Results: Biden Wins“
The New York Times
(bandarísk enska). 3 nóvember 2020.
ISSN
0362-4331
. Sótt 11. desember 2020
Stump, Scott.
„Who will be TIME's 2020 Person of the Year? See the shortlist“
Today.com
(enska)
. Sótt 10. desember 2020
„Elon Musk Is TIME's 2021 Person of the Year“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 13. desember 2021
. Sótt 13. desember 2021
„Volodymyr Zelensky Is Time's 2022 Person of the Year“
Time
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 4 janúar 2023
. Sótt 12 júlí 2022
„Who will be Time's 2022 Person of the Year? See the contenders“
Today
. Sótt 12 júlí 2022
May, Ashley.
„Who are the 'silence breakers' featured as 'Time' Person of the Year?“
USA TODAY
(bandarísk enska)
. Sótt 6. desember 2023
TIME Staff (9. desember 2024).
„Who Will Be TIME's Person of the Year for 2024? See the Shortlist“
TIME
(enska). Afrit af
upprunalegu
geymt þann 9. desember 2024
. Sótt 10. desember 2024
Sótt frá „
Flokkar
Stofnað 1927
Bandarísk tímarit
Frægð
Viðurkenningar
Manneskja ársins hjá
Time
Bæta við umræðu
US