Wikivitnun:Hugtakaskrá - Wikivitnun
Fara í innihald
Úr Wikivitnun, frjálsa tilvitnanasafninu
Hugtakaská
Wikivitnunar hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau hugtök sem notuð eru á íslenska hluta Wikivitnunar.
Efnisyfirlit
0–9
Efst
breyta
Aðgreiningarsíða
breyta
Aðgreiningarsíða
“ (e. disambiguation) er síða sem þjónar þeim tilgangi að veita yfirlit yfir margar merkingar á sama orði eða heiti. Dæmi um aðgreiningarsíðu er
Mars (aðgreining)
. Til að tengja í aðgreiningarsíðu frá aðalnafni hennar skal skrifa {{aðgreiningartengill}} efst í greinina eins og gert er á
Mars
breyta
Breytingarárekstur
breyta
Breytingarárekstur
“ á sér stað þegar tveir eða fleiri gera breytingar á sömu síðu samtímis og getur það oft valdið misskilningi og ruglingi. Sjá nánar:
Breytingarárekstur
Breytingastríð
breyta
Breytingastríð
“ eða „
ritstjórnarstríð
“ er það þegar tveir eða fleiri notendur breyta grein ítrekað þannig að hún falli að smekk þeirra eða taka ítrekað aftur breytingar, sem hafa verið gerðar. Breytingastríð eru óæskileg og stafa oft af því að notendur hafa ekki getað komist að samkomulagi um breytingar á spjallsíðu greinar og hafa ekki getað fengið neinn til að miðla málum.
breyta
Commons
breyta
Commons
“ er sameiginlegur gagnagrunnur með myndum og margmiðlunarefni fyrir öll verkefnin sem Wikimedia-stofnunin rekur.
breyta
Flokkur
breyta
Flokkur
“ er safn greina um svipað efni sem að búinn er til sjálfkrafa í samræmi við flokkamerkingar sem settar eru í greinar. Slíkar flokkamerkingar eru á forminu [[Flokkur:Saga Íslands]] þar sem hlutinn eftir tvípunktinn er nafn flokksins. Flokkarnir falla svo undir yfirflokka og þannig á flokkakerfið að vera nokkurskonar tré sem að veitir aðgang að öllu efni Wikiquote. Sjá einnig:
grunnflokkar
breyta
GFDL
breyta
GFDL
“ stendur fyrir
GNU Free Documentation License
sem er það frjálsa afnotaleyfi sem Wikipedia er gefin út samkvæmt. Sjá einnig grein um
GFDL
og
Wikipedia:Höfundaréttur
Grein
breyta
Greinar
“ eru færslur eða uppflettiorð í tilvitnanasafninu. Þær eru síður í aðalnafnrýminu, sem eru ekki tilvísanir og innihalda strenginn „[[“.
breyta
Hreingerning
breyta
Hreingerning
“ er viðgerð á grein, sem miðar að því að leiðrétta stafsetningar- og innsláttarvillur, bæta málfar og frágang, tenglaprýða o.s.frv. þannig að greinin falli vel að stöðlum Wikiquote. Hreingerning krefst einungis ritstjórnarhæfileika en ekki sérfræðiþekkingar á efni greinar, sem gæti þurft til þess að laga innihald hennar.
breyta
Interwiki
breyta
Interwiki
“ er leið til að tengjast greinum á öðrum tungumálum á sama efni. Það er gert með því að skrifa t.d.
[[en:Ludwig Wittgenstein]]
neðst í grein til að tengja við grein á ensku um heimspekinginn
Ludwig Wittgenstein
. Þessir tenglar koma fram vinstra megin á þeim síðum sem innihalda interwiki-tengla. Athugið að interwiki-tenglar eru settir neðst í hverja grein.
breyta
Kerfissíða
breyta
Kerfissíður
“ eru sjálfvirkt uppfærðar síður sem sýna ýmsa gagnlega tölfræði um verkefnið. Sjá
yfirlitið yfir kerfissíður
breyta
Nafnrými
breyta
Nafnrými
“ eru flokkar sem allar síður Wikiquote falla undir. Aðalnafnrýmið er frátekið undir
greinar
en önnur nafnrými eru til dæmis notendasíður eða spjallsíður. Nafnrýmið þekkist á forskeytinu við titil síðunnar, þessi síða tilheyrir t.d.
Wikiquote:
nafnrýminu en það er notað til að halda utan um allskyns upplýsingar varðandi verkefnið. Greinar hafa ekkert slíkt forskeyti.
breyta
MediaWiki
breyta
MediaWiki
“ er hugbúnaðurinn sem Wikipedia og önnur Wikimedia-verkefni keyra á. MediaWiki er
frjáls hugbúnaður
Melding
breyta
Meldingar
“ eru textastrengir sem notendaviðmót MediaWiki-vefja (þ.á.m. Wikipediu) byggist á. Þeim má breyta, t.d. þegar hugbúnaðurinn er þýddur á nýtt tungumál. Sjá lista yfir
allar meldingar
Möppudýr
breyta
Möppudýr
“ eru æðri stjórnendur. Þeir geta breytt notandanöfnum og gert aðra notendur að stjórnendum og möppudýrum. Sjá einnig:
Möppudýr
breyta
Potturinn
breyta
Potturinn
“ er almenn umræðusíða íslenska Wikiquote. Sjá
Pottinn
breyta
Ritstjórnarstríð
breyta
Ritstjórnarstríð
“: sjá „
breytingastríð
“ að ofan.
breyta
Síða
breyta
Síður
“ eru einstakar færslur á Wikivefnum, þær geta verið greinar, spjall, flokkar, kerfissíður o.s.frv.
Snið
breyta
Snið
“ eru síður í sniðanafnrýminu sem hægt er að fella inn í aðrar síður með því að gera {{nafn sniðs}}. Þau eru hentug til að búa til stöðluð skilaboð til að birta á mörgum síðum eða staðlaðar upplýsingatöflur. Sjá einnig
lista yfir snið
Spjall
breyta
Spjallsíður
“ fylgja flestum síðum á Wikiquote. Þær eru ætlaðar til umræðu um viðkomandi síðu.
Stjórnandi
breyta
Stjórnandi
“ getur tekið þátt í að ritstýra Wikiquote. Hann getur m.a. eytt greinum sem aðrir notendur hafa sent inn. Hann getur einnig bannað aðra notendur. Sjá einnig:
Stjórnendur
breyta
Tenglaprýða
breyta
Að „
tenglaprýða
“ er það sama og „wikify“ á ensku og felur í sér að tengja greinar Wikiquote innbyrðis. Sjá
handbókina
fyrir leiðbeiningar um hvernig hægt er að búa til tengla.
Tilvísun
breyta
Tilvísun
“ er það sama og „
Redirect
“ á ensku. Þeim er ætlað að leiða lesandann á rétta grein þó að hann noti ekki nákvæmt nafn hennar í leitinni. Tilvísun er sett inn í grein á með því að gera: #tilvísun [[Grein sem vísa skal í]]. Dæmi um þetta er
vinur
sem leiðir lesandann á
vinátta
breyta
Wiki
breyta
Wiki
“ er vefsíða sem notendur geta breytt með beinum hætti. Wiki-vefir eru notaðir af samvinnuverkefnum á borð við Wikipediu.
Wikibooks
breyta
Wikibooks
“ eða „
Wikibækur
“ er systurverkefni Wikipediu sem hefur að markmiði að búa til frjálst kennsluefni og leiðbeiningar. Sjá
Wikibooks á íslensku.
Wikimedia
breyta
Wikimedia Foundation Inc.
“ eru samtök sem að halda utan um Wikipediu og systurverkefni hennar (þ.á m. Wikiquote) og reka vélbúnaðinn sem til þarf.
Wikipedia
breyta
Wikipedia
“ er frjálst alfræðirit sem Wikimedia-stofnunin rekur. Sjá
Wikipedia á íslensku.
Wikiquote
breyta
Wikiquote
“ er eitt af verkefnum Wikimedia-stofnunarinnar þar sem safnað er saman tilvitnunum.
Wikisource
breyta
Wikisource
“ eða „
Wikiheimild
“ er systurverkefni Wikipediu sem safnar saman frumtextum sem ekki eru háðir höfundarétti. Sjá
Wikisource á íslensku.
Wiktionary
breyta
Wiktionary
“ eða „
Wikiorðabók
“ er systurverkefni Wikipediu sem gengur út á að búa til frjálsa orðabók. Sjá
Wiktionary á íslensku.
Efnisyfirlit
0–9
Efst
Sótt frá „
Flokkur
Wikivitnun
Wikivitnun
Hugtakaskrá
Bæta við umræðu
US